Það sem þú saknar leitar þín líka.Verndarar, vinir og ástvinir ganga með okkur – jafnvel þegar við finnum ekki fótspor þeirra.

Orð sem berast frá þeim sem elska þig enn, þó þeir séu farnir yfir í ljósið.
Hver lína er eins og flöskuskeyti á þínu persónulega hafi – berst í land á meðan þú hvílist, býr til nýja merkingu í núinu
Þau stíga yfir fljótið til þín með kveðjur, ástarorð eða minningar
Ástvinamiðlun er fyrir þá sem þrá að fá beinar, kærleiksríkar og einlægar upplýsingar eða skilaboð frá ástvinum, fjölskyldumeðlimum eða nánum vinum sem eru fallnir frá.
Ég miðla skilaboðum frá ástvinum sem dveljast nú í öðrum heimkynnum, með blíðu og virðingu.
Þau færa þér styrk og staðfestingu þegar þú þarft þess mest.
Frá pöntun til móttöku, einfalt og aðgengilegt.
Hvert hjartabréf er sérsniðið og persónulegt.
Ég hafði beðið um merki, og þetta var það.
-Anna Dísa
Það var eins og ástvinur minn væri að hvísla í gegnum þessi orð – ég skynjaði nærveruna svo sterkt.
- Magnús Jónsson

Tenging við handanheim er heilög – og hver miðlun ber í sér ljós, hlýju og milda nærveru.
Einungis uppbyggileg og styrkjandi skilaboð.
Þjónustan byggir á siðferðilegri ábyrgð og virðingu fyrir lífi og dauða. Hjartabréf koma ekki í stað faglegs ráðgjafa en þau geta verið ljós á leið.
Já – þú getur óskað sérstaklega eftir sambandi við ákveðinn ástvin, vin eða verndara. Stundum stígur sá einstaklingur fram beint – stundum kemur einhver annar í staðinn með dýpri tengingu eða mikilvæga orðsendingu. Ég hlusta með hjartanu og miðla aðeins því sem kemur með ljósi.
Tenging við handan er andleg samvinna – ekki stjórn. Þeir sem stíga fram hafa oftast ást, skilning eða lækningu að færa. Sálir starfa líka í ljósi og stundum er einfaldlega ekki rétti tíminn. En það sem kemur, er alltaf það sem þú þarft að heyra.
Þú getur sett fram ósk eða beint spurningu að handan, en skilaboðin fylgja alltaf eigin flæði. Stundum svara þau því sem hjartað spyr – jafnvel áður en spurningin hefur verið sett í orð. Aðrir tímar bera með sér það sem þú þarft að heyra – ekki endilega það sem þú ætlaðir að spyrja um.
Já. Stundum stíga fram sálir sem þú kannski þekktir aðeins lauslega – eða jafnvel ekki á lífsleiðinni – en sem hafa tengingu við þig á andlegu sviði. Tenging á sér oft dýpri rætur en við áttum okkur á í daglegu lífi.
Já, dýrin okkar sem hafa kvatt eru gjarnan fús til að tengjast okkur að nýju. Þau bera sömu ást og minningu og koma oft með sérstaka orku og huggun. Tenging við dýr er oft mjög hrein og bein, full af skilyrðislausri ást.
Já, það getur gerst. Hjartabréf eru oft upphaf að tengingu sem heldur áfram – í draumum, minningum, orku eða tilfinningu um að sálin sé nær. Þetta er ekki óvenjulegt, heldur merki um að hjartað hafi opnast.
Með opið hjarta, næma tengingu og virðingu fyrir hinu ósýnilega, hlusta ég á það sem vill heyrast. Ég vinn í kyrrð, ekki í flaustri – með kærleika, ekki með ótta. Þessi vinna er ekki starf – hún er köllun. Hún hefur fylgt mér frá barnæsku, mótast af visku forfeðra minna og kennslu lífsins sjálfs.
Ég tengist þeim sem hafa kvatt þessa veröld og miðla orðum þeirra með auðmýkt og ábyrgð.
Skilaboðin sem berast eru ekki mín – þau fara í gegnum mig. Ég bíð, hlusta, og skrifa það sem kemur, án þess að bæta við eða breyta.
Ég trúi því að ástin deyr ekki. Hún breytir aðeins um form.
Og þegar við opnum hjartað fyrir þeirri tengingu, getur ljós og nærvera borist milli heima – jafnvel í einni setningu, einu orði, eða hljóðlausri tilfinningu.
Það er ekki mitt að stjórna hver kemur, né hvað berst – en ég mun alltaf miðla því sem kemur með kærleika, ljósi og tilgangi.
Ég hef helgað lífi mínu að hjálpa fólki að tengjast ástvinum sínum sem eru farnir. Markmið mitt er að létta sorg og auka skilning í gegnum hjartabréf.
Nærandi og persónuleg skilaboð frá einni sál.
Annaðhvort tilteknum ástvini eða sál sem finnur sig knúna til að stíga fram.
Verð: 9.900 kr.
Tvö aðskilin hjartabréf eða hjartabréf ásamt ítarlegu svari við sérstakri spurningu.
Allt unnið í fyllsta trúnaði.
Verð: 13.900 kr.
Ég geri mitt besta til að miðla skilaboðum frá þeirri sál sem óskað er eftir, en það er ekki á mínu valdi hver stígur fram. Opinn hugur og hjarta gefur dýpri upplifun.
Til að hjartabréfið þitt fái þá virðingu og djúpu athygli sem það á skilið, vinsamlegast sendu mér eftirfarandi upplýsingar í tölvupósti:
Fullt nafn þess sem pöntunin er fyrir
Nafn þess ástvinar, vinar eða leiðbeinanda sem óskað er tengingar við (ef við á)
Stutta lýsingu eða spurningu ef eitthvað liggur þér á hjarta
Netfangið sem þú vilt fá skilaboðin send áVinsamlegast leggðu þjónustugjaldið inn fyrirfram og sendu staðfestingu á greiðslu í tölvupósti eða einkaskilaboðum:
Reikningsnúmer: 0123-26-082220
Kennitala: 010578-3539
Hjartabréf að handan - Þegar ástvinirnir hvísla að þér